Tilvitna
Novator vill símarekstrarleyfi
Novator, fyrirtæki Björgólfs Thors Björgólfssonar, áætlar að fjárfesta í farsímarekstri hérlendis fyrir hundruð miljóna króna. Fyrirtækinu þykja símgjöldin hér á landi há og sjá tækifæri til samkeppni. Fyrirtækið hefur sótt um rekstrarleyfi fyrir 3. kynslóðar farsíma hér á landi.
Fyrirtæki Björgólfs Thors hefur þegar um nokkurt skeið sinnt símarekstri í Austur-Evrópu. Meðal annars hefur það tekið þátt í rekstri svonefndra 3. kynslóðar farsíma. Í stuttu máli þýða 3. kynslóðar farsímar meiri flutningsgetu um farsíma, til að mynda þannig að fólk geti horft á sjónvarp í farsímanum. Þetta krefst hins vegar nokkurra fjárfestinga í dreifikerfi því t.d. þarf fleiri fjarskiptamöstur en við rekstur þeirra farsíma sem nú tíðkast.
Novator hefur um skeið haft svonefnt tilraunaleyfi til að reka 3. kynslóðar farsíma en hefur nú sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt heimildum fréttastofu Útvarps. Fáist leyfið hefur það í för með sér fjárfestingar upp á hundruð miljóna króna í dreifikerfi eftir því sem næst verður komist. Fyrirtækið hyggist taka þátt í samkeppni á farsímamarkaði hér á landi; gjaldskrá farsímafyrirtækjanna sem fyrir eru á markaði þyki Novatorum há og því sé tækifæri til samkeppni. Póst- og fjarskiptastofnun hefur boðið út tíðniheimildir fyrir 3. kynslóðar farsíma. Tilboð verða opnuð um miðjan mars.
Rúv.is

Innskrá
Nýskrá
Hjálp

Fjöldatilvitna