Auglýsingar
lin-button.png

sksiglo.jpg

logo_humor.jpg

Breiðavík

studiobrak_small.jpg
Álit lesenda
cvkasodifu on 19 ágú : 14:41
[ Re: Til þeirra sem skeyta skapi sínu á lögreglu vegna lokunar þegar um slys er að ræða. ]
hfkjahafg<..... [Meira]

sadasd on 14 ágú : 02:24
[ Re: Enn sýna ökumenn vanvirðingu á slystað ]
Top 10 bes..... [Meira]

asdasd on 14 ágú : 02:24
[ Re: Kona lést eftir neyzlu á E-töflum ]
Top 10 bes..... [Meira]

Spjallborðið
Við viljum að sjálfsögðu minna gesti og gangandi á spjallborðið hjá okkur þar sem hægt er að ræða allt milli himins og jarðar.
Fara verður á spjallborðið til að skrá sig inn eða nýskrá sig.
sunnudagur 29 júlí 2007
Dagskrá síldaræfintýrisins á Sigló.
Síldarævintýrið á Siglufirði 2007. 
Endanleg dagskrá komin út – frábærir skemmtikraftar og afþreying fyrir alla fjölskylduna! 
Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru: Páll Óskar - vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag
Jógvan – sigurvegari X-Factor
Hara systur – sem urðu í öðru sæti í X-Factor
Hljómsveitin Bermúda – ótrúlega fersk hljómsveit sem er að gera það mjög gott
Hljómsveitin Karma - með Labba í Mánum fremstan í flokki
Gylfi Víðisson – úr X-Factor
Lísa Hauksdóttir – Idol stjarna úr Idol stjörnuleit 2005
Geirmundur Valtýsson og hljómsveit
Hljómsveitin Tröllaskagahraðlestin 
Tívolí á vegum Sprell leiktækja
Atriði úr Abbababb
Trúðarnir Búri og Bína
Andlitsmálun fyrir börnin
Dorgveiðikeppni
Söngvarakeppni fyrir börnin 
Síldarsaltanir og bryggjuböll
Sjóstangveiðimót
Sæþotuleiga 
...ofl ofl
Höfundur: Keli dags: sunnudagur 29 júlí 2007 - 18:48:46email to someone printer friendlybúa til  pdf skjal úr þessari frétt
laugardagur 21 júlí 2007
Síldarævintýrið á Siglufirði 2007
Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna! 
thumb_100_3025.jpg
Á Siglufirði um verslunarmannahelgina verður Síldarævintýrið haldið í 17 sinn og stefnt er að því að hátíðarhöldin í ár muni ekki gefa þeim fyrri neitt eftir og að boðið verði upp á frábært úrval afþreyingar og skemmtiefnis fyrir alla aldurshópa.
Hátíðin er fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem stórkostleg fjölskylduhátíð þar sem jafnt ungir sem aldnir og allir þar á milli skemmta sér og öðrum í frábæru umhverfi.
Aðgangseyrir á hátíðina er enginn og verð á tjaldstæðum er með því besta sem gerist á landinu en í bænum er fyrsta flokks tjaldaðstaða og fyrirmyndarþjónusta. Mikið er um ókeypis dagskrárliði en einstaka viðburðir eins og dansleikir o.fl. krefjast þó aðgangseyris.
Meðal þess sem Siglufjörður bíður upp á eru, frábærar gönguleiðir, stuttar og langar, t.d. Hvanneyrarskál, Skógræktin, Hólsdalur, Siglunes, Héðinsfjörður o.fl. Góður 9 holu golfvöllur er einnig á svæðinu ásamt sundlaug og líkamsræktarstöð að ógleymdu einu stórfenglegasta safni Evrópu,
Síldarminjasafninu. Fjörðurinn státar af mikilli náttúrufegurð og veðursæld er jafnan eins og best verður á kosið þar sem fjöllin fríðu veita skjól frá veðri og vindum.
Löggæsla á hátíðinni verður ströng og munu lögregla og björgunarsveitir vera til taks allan sólarhringinn en einnig er mjög góð heilsugæsla í bænum sem verður í viðbragðsstöðu alla helgina.
Framkvæmdastjóri er Elías Bjarni Ísfjörð en hann hefur staðið að skipulagningu hátíðarinnar undanfarin tvö ár.
Dagskrá helgarinnar er í mótun og mun verða birt von bráðar á vefnum siglo.is auk þess að verða gefin út á prenti þegar nær dregur hátíðarhöldum.  
Undirbúningsnefnd. 
Höfundur: Keli dags: laugardagur 21 júlí 2007 - 11:33:20email to someone printer friendlybúa til  pdf skjal úr þessari frétt
miðvikudagur 11 apríl 2007
Fjörugur framboðsfundur í Landnámssetrinu í Borgarnesi
Gestir Það er óhætt að segja að ekki hafi verið fjölmennt á framboðsfundi í Landnámssetrinu í Borgarnesi í dag en er ekki oft sagt að það hafi verið fámennt en góðmennt?  Þannig vil ég líta á að það hafi verið en skemmtilegar umræður spunnust oft milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu þó stundum hafi aðeins fokið í menn og þeir gripið fram í hver fyrir öðrum og einu sinni þurftu stjórnendur að stilla til friðar í þeim tilfellum.



Farið var vítt og breitt yfir stefnumál allra flokka og bar mest á samgöngumálum, atvinnumálum og menntamálum hér í norðvesturkjördæmi, en mikið ber í milli hvar áherzlur eiga að vera hvað samgöngur varðar og vilja vestfirðingar fara að fá sinn skerf af þeim vegabótum sem þörf er á í þeim landshluta.  Það er alveg skiljanlegt í ljósi þess að hvað eftir annað hafa framkvæmdir þar verið slegnar af og nú þykir þeim nóg komið.



Stjórn - 1
Rætt var vítt og breitt um menntastefnu og stofnun háskóla á Vestfjörðum og er ekki vanþörf á því að koma því verkefni í gang og drífa það áfram, en ekki er nóg að hafa háskóla á staðnum ef engin er síðan atvinnan þegar námi líkur.Hvað atvinnumál varðar þá virðast allir flokkar vera algerlega ráðalausir þar sem ekki er vilji fyrir stóriðju á svæðinu og fiskurinn hefur minkað frá ári til árs og nýliðun í sjósókn er engin.  Íslendingar eru að auki algerlega á móti því að vinna í fiskvinnu og því er lítill möguleiki á því að reyna að efla eða auka við í sjávarútvegi.

Það verður í það minsta forvitnilegt að fylgjast með hvernig flokkarnir ætla að leysa atvinnuvanda vestfriðinga á næstu árum.






Andstaðan
Átti síðan stutt en skemmtilegt spjall við Jón Bjarnason formann VG, en hann hef ég þekkt síðan ég man eftir mér og einnig Sturlu Böðvarsson en hann og karl faðir minn þekktust vel í denn.  Það spjall var á léttu nótunum og sneri ekkert að pólitík, læt það bíða betri tíma.Þetta var skemmtileg stund og vonandi verður meira um svona fundi hér á svæðinu fram að kosningum. 
Höfundur: Keli dags: miðvikudagur 11 apríl 2007 - 18:53:19email to someone printer friendlybúa til  pdf skjal úr þessari frétt
miðvikudagur 04 apríl 2007
Sýnum fulla aðgát í þungri páskaumferð
thumb_gsxr.jpgNú um páskana leggja margir landsmenn land undir fót og var t.d. umferð um þjóðveg 1 á Vesturlandi allþung í gær og verður það einnig í dag og næstu daga. Af þessu tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í ferð um landið, sama hvort er á láglendi eða hálendi, með það að markmiði að koma í veg fyrir slys.
Ef ferðast er um láglendið:
• Fylgist með veðurspá

• Farið yfir hjólbarðana og hreinsið tjöru af þeim
• Stillið aksturshraðann miðað við aðstæður en þó aldrei umfram hámarkshraða

• Munið að akstur og áfengi fer ekki saman
• Hafið beltin spennt og tryggið öryggi barnanna


Ef ferðast er um hálendið:
• Fylgist með veðurspá

• Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum
• Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um

• Hafið í huga að víða er mikið er af krapa þessa dagana og margir hafa lent í vandræðum vegna hans.
• Hafið með góðan hlífðarfatnað
• Takið með sjúkragögn og neyðarfæði

• Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau
• Verið viss um að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað
• Ferðist ekki einbíla

• Takið með nauðsynleg verkfæri og varahluti fyrir farartækið og festið allan farangur
• Munið að akstur og áfengi fer ekki saman
• Ef ferðast er í bíl spennið beltin og tryggið öryggi barnanna og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða

• Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur
Höfundur: Keli dags: miðvikudagur 04 apríl 2007 - 18:59:23email to someone printer friendlybúa til  pdf skjal úr þessari frétt
laugardagur 24 mars 2007
" Píkusögur" fluttar í Landnámssetrinu Borgarnesi.
100_4759Frábær flutningur á "Píkusögur" hjá nokkrum konum í Lionsklúbbnum Agla.
Ég og vinkona mín fórum í gærkvöldi að hlusta á leikritið "Píkusögur "en það var flutt af nokkrum
kjarnakonum hér í bæ og foru þær allar á kostum.. og mikilli innlifun..
Mér fannst það ótrúlegt að ekki var nema einn karlmaður  á meðal áheyranda...merkilegt hvað karlmenn hér í Borgarnesi virtust hafa hafa lítinn áhuga á því hvað blessaðar "píkurnar" okkar
hafa að segja.  Hann er greinilega eini alvöru karlmaðurinn hér í bæ.
En það er kanski ekkert skrítið þar sem við konur virðumst ansi margar, samkvæmt þessum sögum vita lítið um okkar eigin líkama...þá er ekkert skrítið að karlagreyin viti ekki mikið um okkur og starfsemi þessa lífæris okkar kvenna..nema það að í "píkuna" sé hægt að troða lim inn í og að út um hana komi barn.


[ Lesa meira... ]
Höfundur: Keli dags: laugardagur 24 mars 2007 - 21:42:02email to someone printer friendlybúa til  pdf skjal úr þessari frétt
Fara á síðu       >>  
Safnskrá frétta
Alþjóðasamtök leiklistarfólks á Siglufirði Keli @ (22 mar : 19:02) (Innlendar fréttir)
Eldur í ruslagámi í Borgarnesi Keli @ (21 mar : 01:38) (Innlendar fréttir)
Jarðýta fór á hvolf á Ólafsfirði. Keli @ (20 mar : 03:37) (Innlendar fréttir)
Enn sýna ökumenn vanvirðingu á slystað Keli @ (19 mar : 19:24) (Innlendar fréttir)
Staðfestir þjófnað úr framkvæmdasjóði aldraðra. Keli @ (17 mar : 15:43) (Innlendar fréttir)
Fréttaveita
Okkar fréttir er hægt að birta með því að nota þessa RSS möguleika.
rss1.0
rss2.0
rdf
Allt efni á alvaran.com er höfundarréttarvarið samkvæmt lögum

free webpage counters
Render time: 0.6473 second(s); 0.2584 of that for queries.